Vegan saltkaramellu ís með kirsuberjamauki 

Í dag eiga Sæluréttir Siggu eins árs afmæli 🥳 Ár er síðan vefsíðan fór í loftið. Færslur í flokknum Uppskriftir eru orðnar 110, en uppskriftirnar eitthvað fleiri því stundum eru fleiri en ein í hverri færslu. Þetta hefur verið ævintýri líkast og ég er innilega þakklát fyrir frábærar viðtökur! ❤️

Nú er tími kirsuberjanna, sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Afmælis uppskriftin er sumarlegur ís með þessum himnesku berjum 🍒

Hráefni

1 dós eða ferna kókosmjólk (ef þið smellið á linkinn sjáið þið tegundirnar sem ég mæli með)

1 kúfuð matskeið af möndlu/heslihnetusmöri frá Monki

Sjávarsalt eftir smekk

1 msk saxaðar möndlur

Aðferð

Setjið skálina úr ísvélinni í frysti.

Blandið öllum hráefnum (fyrir utan möndlur) vel saman í blandara og setjið í frysti í eina klukkustund.

Takið úr frystinum og látið ganga í ísvélinni í ca. 10 mínútur eða þar til áferðin verður falleg. Hann má heldur ekki vera of lengi, þá verður hann of stífur. Það hefur verið svolítið misjafnt hvað þetta tekur langan tíma, en þið verðið bara að fylgjast með. 

Blandið möndlunum saman við, skiptið í skálar eða á diska og setjið kirsuberjamaukið undir eða út á. Það er undir á myndunum svo það sést ekki. Mjög gott að hafa fullt af ferskum kirsuberjum með líka. Á myndunum hef ég líka saxað niður Súkkulaðihraun yfir, en þið látið ímyndunaraflið vísa ykkur veginn.

Ísinn er bestur beint úr ísvélinni. Þegar ísinn er frystur aftur verður hann ansi harður.

Ath. Þennan ís hef ég einungis prófað að gera í ísvél, en gæti verið að hann virkaði án þess. Yrði þó líklega grjótharður. Ef til vill er hægt að nota sömu aðferð og þegar gerður er hefðbundinn ís, að taka blönduna úr frysti annað slagið og hræra upp í henni.

Uppskriftin er gerð í samvinnu við Good Good.

Kirsuberjamauk

Hráefni

1 og 1/2 bolli steinhreinsuð kirsuber

1 msk chiafræ

1 msk vatn

10 stevíudropar, frá Good Good

Aðferð

Skerið kirsuberin gróflega. Sjóðið allt saman í 7-10 mínútur eða þar til áferðin er orðin eins og ykkur finnst hún falleg. 

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Good Good.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.