Hráefni
200 g ólífuolía
100 g möndlumjólk, án sætu- og þykkingarefna
2 tsk sítrónusafi eða eplaedik
salt
svartur pipar
Aðferð
Setjið allt í könnu, eða aflangt djúpt ílát, og notið töfrasprota til að blanda saman. Það þarf að vera gert eins og myndbandið sýnir. Athugið að þetta virkar ekki eins vel ef möndlumjólkin inniheldur önnur hráefni en möndlur, vatn og salt. Aðrar tegundir af jurtamjólk sem ég hef prófað virka ekki heldur í þessu samhengi og ekki extra virgin ólífuolía heldur. Hægt að krydda með hverju sem ykkur dettur í hug. Ég hef notað hvítlauk, kóríander, dill, chilli og fleira. Best að blanda ólífuolíunni og möndlumjólkinni saman fyrst með sprotanum og þegar það hefur þykknað sýrunni og kryddinu.
Vegan mayo
Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.