Súkkulaðibitar með tamari möndlum og sesamfræjum

Ég held ekki upp á Valentínusardaginn, en fagna hverju tilefni sem gefst til að fá sér gæða súkkulaði 🙂

Hráefni

50 g 100% súkkulaði

30 g 85% súkkulaði

1 msk kakósmjör

1 msk kókosolía

2 msk heslihnetu- og möndlusmjör

1/2 bolli hnetublanda (ég notaði kasjú og pecan frá Rapunzel)

1/2 bolli tamari möndlur

2 msk sesamfræ

12 dropar karamellu stevía, frá Good Good

1 tsk hreint vanilluduft

1/2 tsk salt

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Good Good og Rapunzel.

Aðferð

Saxið möndlur og hnetur miðlungs gróft.

Bræðið kókosolíu, kakósmjör, súkkulaði og heslihnetu- og möndlusmör saman við lágan hita. Það þarf aðeins að hjálpa möndlusmjörinu, kremja með skeið til að það bráðni og samlagist hinu vel. Gætið þess að blandan byrji ekki að sjóða.

 

Bætið við stevíudropum, salti og vanillu. Setjið hnetur, möndlur og sesamfræ út í og hrærið vel saman við.  Sett á plötu með bökunarpappír og þjappað vel svo bitarnir verði ekki þykkir. Dreifið sesam fræjum yfir. Fryst í a.m.k. 2 klst og brotið niður rétt áður en það er borið fram. Geymist vel í frysti.

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Good Good og Rapunzel.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.