Hráefni
1 gúrka
1-2 hvítlauksgeirar
1 sítróna, safinn
2-4 litlir ísmolar
1/4-1/2 bolli fersk mynta
salt og svartur pipar
Aðferð
Skerið gúrkuna gróft og hreinsið hvítlaukinn. Kreistið safann úr sítrónunni. Setjið allt í kraftmikla matvinnsluvél eða blandara og látið ganga þar til allt hefur samlagast vel.
Hversu mikinn hvítlauk, myntu og krydd þið notið er smekksatriði. Gott að prófa sig áfram.
Ég skreytti súpuna með birkifræjum og myntu en það má auðvitað nota það sem hugurinn girnist.
Hér er súpan borin fram í litlum flöskum, sem hluti af hlaðborði.
Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.