Hráefni
1 laukur, líka hægt að nota rauðlauk eða skarlottulauk
1 msk hvítlaukur, saxaður
1 msk engifer, saxaður
1 dós tómatar, maukaðir og lífrænir
1 msk tómatmauk
3-5 þurrkaðir chilli, fást í Asíumörkuðum
1 tsk cumin fræ
1 tsk kóríander fræ
2 tsk Garam Masala
1 tsk túrmerik
1 tsk cumin, frá Mabrúka
1/2 tsk chilli duft
1/4 tsk cayanne pipar (ef vill)
salt og svartur pipar
ólífuolía
2 dósir kjúklingabaunir
1 knippi ferskur kóríander
Aðferð
Hreinsið og saxið lauk, hvítlauk og engifer. Sigtið vökvann frá kjúklingabaununum.
Setjið svolitila olíu á miðlungs heita pönnu og byrjið á að steikja cumin fræ og kóríander fræ. Þegar þau eru aðeins farin að poppa og ilma bætið þið lauk, hvítlauk, þurrkuðum chilli og engifer saman við og steikið þar til laukurinn er glær.
Bætið öllu kryddinu saman við og hrærið saman. Síðan setjið þið tómatana úr dósinni og tómatmaukið út í. Fyllið svo dósina til hálfs af vatni og hellið út í.
Látið malla við lágan hita í 20 mínútur og hrærið í annað slagið. Smakkið til og bætið við kryddi og/eða salti ef þarf.
Hellið öllu sem er í pönnunni í blandara og maukið. Ef þið eruð ekki hrifin af sterkum mat er rétt að veiða þurrkuðu chilli-ana úr pönnunni áður. Það má reyndar sleppa því að mauka, en þá verður rétturinn ekki eins og sá sem maður fær á veitingastöðum.
Setjið blönduna aftur á pönnuna og kjúklingabaunirnar saman við. Látið malla við lágan hita í 15-20 mínútur.
Chana Masala er best að bera fram með hrísgrjónum og skreyta með ferskum kóríander. Sumum finnst gott að setja meiri ferskan kóríander saman við, en það er smekksatriði. Auðvitað má líka sleppa honum alveg ef þið eruð ekki hrifiin af kóríander.
Líka gott að hafa poppadoms með.
Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.