Bökur með saltkaramellukremi og pecan hnetum

Bökuskel

Hráefni

2 bollar möndlumjöl

1/2 bolli tapioka

1/2 bolli hrísmjöl

1-2 msk kakó

2 msk brædd kókosolía

25 g vegan smjör, kubbur frá Naturli

1 egg, eða eða 1 chia egg (1 msk möluð chiafræ og 2 msk vatn)

1/2 tsk salti

2-3 msk vatn

Aðferð

Forhitið ofninn í 170°C

Bræðið kókosolíuna og látið hana kólna aðeins.

Smyrjið mótin, eða mótið, með kókosolíu.

Sigtið saman möndlumjöl, tapíoka, hrísmjöl og kakó í skál. Saltið og blandið svo vel saman.

Síðan kemur kókosolían og þegar þið eruð búnar að píska hana saman við er deigið eins og grófur sandur.

Að síðustu eru egg (eða chia egg sem beðið hefur í 5 mínútur) og vegan smjör í litlum bitum sett út í og þá er best að nota hendurnar til að blanda og hnoða saman á sama hátt og þegar hefðbundið bökudeig er gert. Þetta er erfiðara en þegar um smjördeig er að ræða og í lokin þarf að bæta vatni út í, sérstaklega ef þið notið chia egg.

Ef þið ætlið að baka eina stóra böku er gott að fletja deigið út með kökukefli. Gott að nota bökunarpappír undir og yfir deigið til að það klessist ekki við keflið.

Annars, skiptið þið deiginu í bökumót og þrýstið því vel niður í mótin. Skeljarnar eiga að vera þunnar.

Bakið við 170 gráður í 16 mínútur.

Bökuskeljarnar eru svo fylltar með saltkaramellukremi og skreyttar með pecan hnetum.

Saltkaramellukrem

Hráefni

15 g 85% súkkulaði

30 g vegan smjör, kubbur frá Naturli

4 msk heslihnetu- og möndlusmjör, kúfaðar

1 tsk hreint vanilluduft

1/2 tsk salt

2 msk yacon síróp

Þeyttur hafra- eða kókosrjómi, magn fer eftir smekk

Aðferð

Þeytið hafra- eða kókosrjóma

Bræðið vegan smjör, súkkulaði og heslihnetu- og möndlusmör saman við lágan hita. Það þarf aðeins að hjálpa möndlusmjörinu, kremja með skeið til að það bráðni og samlagist hinu vel. Bætið salti og vanillu saman við og kælið blönduna.

Þegar blandan hefur kólnað er yacon sírópinu hrært vel saman við.

Takið það magn af þeytta rjómanum sem þið ætlið að nota á bökuna/bökurnar og þeytið saltkaramelluna saman við.

Hér setti ég líka óblandaða saltkaramellu undir kremið og það var mjög gott.

Það er misjafnt hversu mikið saltkaramellubragð fólk vill hafa svo magnið sem þið setjið út í rjómann fer eftir smekk.

Og þá er bara eftir að raða pecan hnetunum ofan á.

Það er auðvitað líka hægt að fylla skeljarnar með ýmsu öðru. Einfaldast er rjómi og ber eða ávextir en svo er líka virkilega gott að hafa sítrónukrem og marens eins og gert er Í UPPSKRIFT SEM ÞIÐ FINNIÐ HÉR.

Sítrónukrem

Gleðilega páska 🐣

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.