Bókhveitigrautur með fjallagrösum

Hráefni

1 bolli bókhveitigrjón

1-1 og 1/2 bolli möndlumjólk (eða önnur jurtamjólk)

svolítið af fjallagrösum,

1/2 tsk kanill

1 tsk hreint vanilluduft

örl. salt

Aðferð

Leggið bókhveitigrjónin í bleyti yfir nótt. Sleppur samt alveg þó þau séu ekki nema í  2-3 tíma. Sigtið vatnið frá og hreinsið með því að láta kalt vatn úr krananum renna yfir grjónin.

Fjallagrösin þurfa líka að liggja í bleyti, en klukkustund nægir. Passið að nota ekki of mikið af þeim, þá verður grauturinn beiskur.

Setjið möndlumjólkina og bókhveitigrjónin í pott og sjóðið við lágan hita í 5 mínútur. Þá er fjallagrösunum bætt út í og grauturinn soðinn áfram í u.þ.b. 5 mínútur. Hrærið kanil, vanillu og salti saman við í lokin.

Berið fram með berjum, ávöxtum eða einfaldlega því sem ykkur þykir gott. Á myndunum er ég með íslensk aðalbláber og granóla. Það var einstaklega ljúffengt.

Það er misjafnt hvort fólki finnst gott að hafa graut þykkann. Í þessari uppskrift er hann nokkuð þykkur, því mér finnst gott að hafa möndlumjólk út á. Ef þið viljið þunnan graut notið þið einfaldlega meiri jurtamjólk.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.