Fersk ber með gómsætu granóla (fyrir Gestgjafann)

Mynd: Anna Kristín Scheving fyrir Gestgjafann

Ljómandi eftirréttur til að njóta um áramótin. Þið getið notað hvaða ber eða ávexti sem er. Um að gera að nota það sem ykkur finnst best.

Gleðilegt ár og ástarþakkir fyrir samskiptin á því sem er að líða

Mynd: Anna Kristín Scheving fyrir Gestgjafann

Hráefni

jarðarber

bláber

granateplafræ

20 g 85-100% súkkulaði

Magn fer eftir þeim fjölda sem þið eruð með í mat og hversu stórar eftirréttarskálar þið notið.

Mynd: Anna Kristín Scheving fyrir Gestgjafann.

Granóla

Hráefni

1/3 bolli pecan hnetur, frá Rapunzel

1/3 bolli kasjú hnetur, frá Rapunzel

1/4 bolli glútenlausir hafrar

1/4 bolli poppað kínúa, frá Rapunzel

10-15 g vegan smjör, mér finnst best að nota kubb frá Naturli

4 dropar karamellu stevía, frá Good Good

1/2 tsk hreint vanilluduft, frá Rapunzel

1/2 tsk ceylon kanill, frá Kryddhúsinu

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Rapunzel, Good Good og Kryddhúsið.

Aðferð

Saxið pecan hnetur og kasjú hnetur gróft. Skellið þeim á heita pönnu og þurristið þar til þær byrja að taka lit og ilmurinn er indæll. Þá setjið þið hafrana og poppaða kínúað saman við og ristið aðeins áfram.

Að lokum er vegan smjörið sett saman við ásamt vanillu, kanil og stevíu og hrært vel saman. Fínt að leyfa smjörinu að bráðna aðeins á miðri pönnu áður en þið hrærið saman. Kælið.

Mynd: Anna Kristín Scheving fyrir Gestgjafann.

Takið fræin úr granateplunum og skerið jarðarberin niður eins og ykkur finnst best. Saxið súkkulaði.

Blandið jarðarberjum, bláberjum og granateplafræjum í eftirréttaskálar eða falleg glös. Dreifið vel af granóla yfir og síðan söxuðu súkkulaði. 

Þekjið með þeyttum kókos- eða hafrarjóma. Hægt að skreyta með granóla, súkkulaði og granateplakjörnum, nú eða búa til jarðarberjajólasvein ef ykkur finnst gaman að föndra.

Granólað geymist vel í glerkrukku og hægt að nota afganginn á morgungrautinn til dæmis, nú eða á salat, ofan á krem á kökum eða í sælgætisbita með bráðnu súkkulaði.

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Rapunzel, Good Good og Kryddhúsið.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.