Blómkálsmauk

Hér er blómkálsstappan undir bökuðu grænmeti.

Hráefni

300 g blómkál

4-5 hvítlauksgeirar

1-2 rósmarín, nálar

1-2 blóðbergsstilkar, laufin

1 dl haframjólk, eða möndlumjólk

salt og svartur pipar

Aðferð

Skrælið hvítlaukinn, skiptið blómkálinu niður í kvisti og takið laufin af blóðbergsstilkunum og nálarnar af rósmarínstilkunum.

 

Setjið allt í pott og látið malla við lágan hita þar til blómkálið er orðið mjúkt.

Maukið með töfrasprota eða í blandara.

Það er bæði hægt að nota blómkálsmauk með grænmetisréttum og fiskréttum.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.