Hráefni
2 avocado
3 egg
1 dós túnfiskur
1/2 sítróna, safinn
svartur pipar og salt
krydd að eigin vali, ég nota chilli og indverskt karrý. Stundum hvítlauksduft.
einning gott að bragðbæta með t.d. Capers, fínsöxuðum rauðlauk, eða sinnepi. Ekki öllu í einu samt.
steinselja eða kóríander
Aðferð
Harðsjóðið eggin.
Skerið avocado í tvennt og skafið innihaldið á disk.
Kreistið safann úr túnfiskinum.
Kreistið safann úr sítrónunni út á avocadóið og stappið það ásamt kryddi. Ef þið notið capers, fínsaxaðan rauðlauk eða sinnep fer það saman við þarna líka.

Skerið eggin í litla bita í eggjaskera og stappið saman við avocadoið.
Hrærið túnfiskinn saman við.

Smakkið til. Þetta er svolítið bragðdauft svo ég nota alltaf mikið af svörtum pipar. Hann er líka svo hollur. Og vel af ýmsu til að bragðbæta.
Stöppuna má svo nota sem álegg á brauð og skreyta með steinselju eða kóríander.

Líka gott inn í bollur.

Og svo má bara vefja salablaði utan um ef ykkur langar ekki í brauð.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.