Hráefni
400 g sojahakk
1 laukur
4 hvítlauksrif
1 rauður chilli
2 dósir saxaðir, lífrænir tómatar
1 dós blandaðar lífrænar baunir; hvítar, rauðar nýrnabaunir og smjōrbaunir
1/2 tsk cumin
1/2 tsk cayennepipar
1 tsk kóríanderduft
salt og pipar
200 ml vatn
olía til steikingar
Aðferð
Hreinsið og saxið lauk, hvítlauk og chilli. Steikið það um stund á heitri pönnu og þegar það hefur aðeins tekið lit er hakkinu blandað saman við og brúnað áfram. Það brúnast ekki jafnvel og kjöthakk, en það gerir ekki til. Kryddið sett saman við og blandan látin steikjast aðeins meira áður en tómatar og vatn fara út í.
Allt látið malla í u.þ.b. hálftíma.
Baununum blandað saman við og látið malla áfram í 5 mínútur, eða þar til blandan er passlega þykk fyrir ykkar smekk.
Salsa
Hráefni
6 tómatar
1 lítill rauðlaukur, eða hálfur stór
1/2 gul paprika
4-5 hvítlauksrif
1 grænn chilli
1 msk jalapeño
1 msk saxað ferskt kóríander
1 msk söxuð fersk steinselja
1 tsk cumin
1/4 tsk cayennepipar
salt og pipar
1/2 límóna, safinn úr henni
1 msk olífuolía
Aðferð
Saxið tómata, rauðlauk, papriku, hvítlauk, chilli, jalapenjo, kóríander og steinselju.
Setjið allt í skál og blandið kryddinu saman við.
Setjið olíuna út á, sem og límónusafann.
Blandið vel saman og bætið kryddi við ef þarf.
Guacamole
Hráefni
300 g avocado, ferskt eða frosið
1 msk saxaður rauðlaukur
1 msk af söxuðum, ferskum kóríander, eða eftir smekk
1/2 sítróna, rifinn börkur
1/2 límóna, safinn úr henni
Aðferð
Hreinsið og maukið avocado-ið. Ég nota kartöflustappara til að mauka það en það er líka hægt að nota gaffal, eða jafnvel hrærivél.
Saxið rauðlauk og kóríander.
Blandið öllu saman í skál og setjið límónusafa og rifinn sítrónubörk saman við.
Sumir nota saxaða papriku, tómata eða chilli í avocado og meira krydd, en mér finnst það gott svona einfalt. Algjört smekksatriði og lengi hægt að leika sér með grunninn.
Borið fram í glútenlausum vefjum, eða með glútenlausu snakki, og vel af grænu salati.
Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.