Hráefni
400 g þorskur
1/2 laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, söxuð
1 msk ferskur engifer, saxaður
1/2 chilli, saxaður
nokkur karrýlauf
1 msk karrýduft
salt og svartur pipar
ólífuolía til steikingar
250 ml hafrarjómi, matreiðslu. Líka hægt að nota kókosrjóma.
svolítið vatn, ef þarf
Aðferð
Skerið þorskinn í bita. Hversu stóra er smekksatriði. Makið á hann ólífuolíu og kryddið með svörtum pipar og smávegis salti. Látið hann bíða meðan sósan er gerð.
Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, hvítlauk, engifer og chilli.
Setjið karrýlauf og indverskt karrý saman við og steikið örlítið lengur.
Hellið matreiðslurjómanum (eða kókosrjómanum) út á og blandið vel saman. Bætið við svolitlu vatni ef ykkur finnst sósan of þykk. Smakkið til og bætið salti og svörtum pipar saman við ef þarf. Látið malla meðan fiskurinn er steiktur.
Steikið fiskinn á pönnu þar til hann tekur svolítinn lit. Snúið stykkjunum við.
Hellið sósunni yfir fiskinn og látið malla í 1-3 mínútur og hvíla aðeins lengur.

Gott að hafa soðin hrísgrjón með og/eða salat.
Smellið HÉR til að lesa um karrýlauf. Þau fást í Fiska í Kópavogi.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.