Sumarleg terta með möndlum og súkkulaði 

Hráefni

1 og 1/2 msk chia fræ og 5 msk vatn

1/4 bolli möndlumjólk og 2 msk eplaedik

1 msk ólífuolía

1 banani, vel þroskaður

1 bolli möndlumjöl

1 bolli kjúklingabaunamjöl

3/4 bolli hrísmjöl

1/3 bolli tapioka sterkja

1 tsk vanilluduft

2 tsk matarsódi

2 tsk vínsteinslyftiduft

1 bolli möndlumjólk

1/2 bolli möndlur, frá Rapunzel

40 g dökkt súkkulaði (85 – 100%)

Uppskriftin er gerð í samstarfi við Rapunzel.

Aðferð

Forhitið ofninn í 170 gráður.

Setjið chia fræ og vatn í stóra skál, hrærið saman og látið bíða í 5 mínútur.

Blandið saman 1/4 bolla af möndlumjólk og 2 msk af eplaediki og látið bíða í 5 mínútur.

Stappið bananann.

Saxið heslihneturnar og súkkulaðið.

Sigtið þurrefnin saman í aðra skál; möndlumjöl, kjúklingabaunamjöl, hrísmjöl, tapioka og lyftiefni.

Olíunni er pískað saman við chia eggið, sem og vanillu. Síðan er blöndunni úr eplaedikinu og möndlumjólkinni hrært saman við, því næst stappaða banananum, og síðast 1 bolla af möndlumjólk.

Þurrefnin sett út í og hrært þar til deigið er kekkjalaust. Möndlum og súkkulaði blandað varlega saman við.

Sett í lagkökuform, sem klætt er að innan með bökunarpappír og bakað við 170 gráður í 35-40 mínútur.

Þegar kakan hefur kólnað er gott að skreyta hana með þeyttum hafra- eða kókosrjóma og berjum og/eða ávöxtum. Ég notaði bláber, ferskjur og granatepli að þessu sinni.

Uppskriftin er gerð í samstarfi við Rapunzel.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.