Súkkulaðibitar með granateplafræjum

Hráefni

80 g af 85 – 100% súkkulaði

1 msk vegan smjör eða kakósmjör

2 msk heslihnetu- og möndlusmjör

1 bolli pecan hnetur, frá Rapunzel

1/2 bolli valhnetur, frá Rapunzel

1/2 bolli poppað kínúa, frá Rapunzel

1 granatepli

12 dropar karamellu stevía, frá Good Good

1 tsk hreint vanilluduft, frá Rapunzel

1/2 tsk salt

Uppskriftin er gerð í samstarfi við Rapunzel og Good Good.

Aðferð

Takið fræin úr granateplinu og sigtið safann frá. Saxið hnetur miðlungs gróft.

Bræðið saman súkkulaði, vegan- eða kakósmjör, og heslihnetu- og möndlusmör við mjög lágan hita. Það þarf aðeins að hjálpa möndlusmjörinu, kremja með skeið til að það bráðni og samlagist hinu vel. Gætið þess að blandan byrji ekki að sjóða.

Bætið við stevíudropum, salti og vanillu í lokin þegar allt er bráðnað saman. Blandið hnetum, poppuðu kínúa og 1/2 bolla af granateplafræjum út í og hrærið vel saman við.

Setið á plötu með bökunarpappír og þjappið vel svo bitarnir verði ekki mjög þykkir. Dreifið afgangnum af grantaeplafræjunum yfir og þrýstið þeim aðeins niður í súkkulaðiblönduna. Frystið í a.m.k. 2 klst og brjótið niður rétt áður en nammið er borið fram. Geymist vel í frysti.

Uppskriftin er gerð í samstarfi við Rapunzel og Good Good.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.