Súkkulaðibitar með bláberjum

Hráefni

1 bolli þurrkuð bláber (líka hægt að nota fersk, en þá verður nammið öðruvísi

100 g 90-100% súkkulaði

1 msk kókosolía, bragð- og lyktarlaus

2 msk heslihnetu- og möndlusmjör

1/2 tsk hreint vanilluduft, frá Rapunzel

1/4-1/2 tsk salt

4 dropar karamellu stevía, frá Good Good

1/2 bolli saxaðar pecan hnetur, frá Rapunzel

1/2 bolli poppað kínúa

1/2 bolli haframjöl, glútenlaust

Uppskriftin er gerð í samvinnu við Rapunzel og Good Good.

Aðferð

Saxið pecan hneturnar miðlungs gróft.

Bræðið súkkulaði, kókosolíu og heslihnetu- og möndlusmör saman við lágan hita. Það þarf aðeins að hjálpa möndlusmjörinu, kremja með skeið til að það bráðni og samlagist hinu vel. Bætið salti, vanillu og stevíu saman við.

Blandið síðan hnetumulningnum, bláberjunum, poppaða kínúanu og haframjölinu saman við.

Setjið á plötu með bökunarpappír og frystið. Bláberjanammið geymist lengi í frysti.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Rapunzel og Good Good.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.