Sítrónuostakaka

Botn

Hráefni

2 bollar hnetublanda, hnetur að eigin vali en betra að allavega helmingurinn sé mjúkur eins og t.d. kasjú, pecan eða valhnetur.

10 döðlur

20 g vegan smjör, brætt

1/2 tsk salt

Aðferð

Setjið hnetur döðlur og salt í blandara og fínmalið. Brædda vegan smjörið fer síðast saman við. Ég nota reyndar oftast hendurnar til að hnoða það saman við.

Þrýstið blöndunni vel í botninn á nokkrum formum eða einu stóru. Hversu mörg þau eru fer eftir stærð.

Frystið í a.m.k. klukkustund.

Fylling

Hráefni

1 bolli kasjúhnetur

1-1 og 1/2 sítróna, þurfið 1/4 bolla af sítrónusafa

2 kúfaðar tsk sítrónubörkur, fínt rifinn

1 pk silken tofu (300 g)

1 bolli hafrarjómi, þeyttur (má líka nota þykka hlutann úr kókosmjólk)

2 msk stevíuduft, frá Good Good, eða 2 msk yacun síróp. Þeir sem það þola geta notað hlynsíróp í staðinn

1/2 -1 tsk hreint vanilluduft

örl. salt

Gott að hafa þeyttan hafrarjóma og bláber með.
Líka hægt að hafa hana í litlum formum.

Aðferð

Leggið kasjúhneturnar í bleyti daginn áður eða látið þær mýkjast í sjóðandi heitu vatni í 2 tíma.

Sigtið vatnið frá kasjúhnetunum.

Sigtið vökvann frá silken tofu-inu.

Þeytið hafrarjómann. Nú eða kókosrjómann ef þið notið hann. Setjið vanilluduftið saman við áður en þið þeytið. Ég á oft afgang af þeyttum hafrarjóma og nota hann þá.

Rífið börkinn af sítrónu og kreistið úr henni safann.

Setjið allt sem á að fara í fyllinguna í matvinnsluvél eða blandara og látið ganga þar til blandan er orðin silkimjúk. Stoppið nokkrum sinnum og skafið hliðarnar með sleikju. Þetta getur tekið þó nokkrar atlögur þannig að allt sé vel maukað, bæði hneturnar og silken tofu-ið. Þið getið smakkað til að athuga hversu sæta þið viljið hafa blönduna. Smekkurinn er svo misjafn.

Ef þið eigið ekki mjög öfluga matvinnsluvél er best að mauka silken tofu-ið áður en hinu er blandað saman við. Og jafnvel enn betra að mauka kasjú hneturnar sér líka. En til þess að þessi kaka verði virkilega góð er best að nota kraftmikla matvinnsluvél eða blandara.

Þegar blandan er orðin mjúk og kekkjalaus hellið þið henni í formin og kælið svo í ísskáp í a.m.k. 4 klukkustundir.

Ostakakan er reyndar enn betri daginn eftir og geymist vel í ísskáp í nokkra daga. Ef þið setjið hana í frysti geymist hún í nokkra mánuði.

Hér er hún skreytt fyrir barnaafmæli.
Og hér með bláberjum og granóla sem eftirréttur.

Verði ykkur að góðu!

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.