Seljurótarsúpa

Hráefni

500 g seljurót

300 g blómkál 

200 g kartōflur

1/2 laukur

5-7 hvítlauksgeirar

2 msk estragon/tarragon

salt og svartur pipar

ólífuolía, til steikingar

1/2 l möndlumjólk 

1 l vatn

1 peli hafrarjómi, frá Oatly 

1 msk næringarger

spírur, heimatilbúin kryddolía og/eða fræ

Til að búa til kryddolíu er einfalt að blanda saman 4 msk af sítrónuolíu og góðri handfylli af basilíu eða kóríander í blandara. Ef þið eigið ekki sítrónuolíu er hægt að nota ólívuolíu og 1 msk af sítrónusafa í staðinn.

Aðferð

Hreinsið og skerið grænmeti, lauk og hvítlauk gróft. 

Steikið aðeins í stórum potti. 

Hellið möndlumjólk, vatni, hafrarjóma og kryddi saman við og eftir að suðan kemur upp er súpan látin malla í 40 mínútur. Setjið næringargerið saman við í lokin.

Maukið með töfrasprota. Smakkið til og bætið meira kryddi ef þarf. Ef þið viljið ennþá mýkri áferð er hægt að hella súpunni í blandara og láta hann ganga þar til hún verður silkimjúk.

Gott að setja pínu basilíku- eða kóríanderolíu út á og spírur eða fræ.

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Ecospíra og Oatly.

Fyrir ykkur sem ekki borðið kartöflur er vert að taka fram að súpan er ágæt án þeirra líka. Þá setjið þið bara meira af seljurótinni og blómkálinu.

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Ecospíra og Oatly.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.