Hráefni
2 msk chia fræ
6 msk vatn
3-4 bananar, þroskaðir
2 msk olífuolía
2 tsk kanill
3 tsk matarsódi
2 tsk vínsteinslyftiduft
1/2-1 tsk salt
1/2 tsk vanillu duft
1 bolli möndlumjólk
3 bollar möndlumjöl
2 bollar haframjöl
1 bolli hrísmjöl
1/2 bolli tapiokamjöl

Aðferð
Setjið chia fræin og vatnið í stóra skál og blandið vel saman. Látið bíða í 5 mínútur.
Stappið bananana.
Hrærið ólífuolíunni vel saman við chia egg (chia fræ og vatn) í skálinni og blandið síðan kanil, vanillu og salti saman við. Því næst koma bananarnir, þá möndlumjólkin og lyftiefnin.
Hrærið þurrefnin svo saman við með sleif.
Klæðið bökunarskúffu með bökunarpappír og setjið deigið í hana. Það er þykkt svo um að gera að breiða vel úr því og jafna út.
Bakið við 170 gráður í 35-40 mínútur.
Þegar kakan hefur kólnað á bökunargrind er komið að því að skera út fallegan regnboga með beittum hníf.

Smjörkrem
Hráefni
1 og 1/2 dós vegan rjómaostur, frá Violife – hreinn
1 bolli þeyttur hafrarjómi
1/2 tsk vanilluduft
6 dropar karamellustevía, frá Good Good
Litabombur, fást í Bónus og hjá vefversluninni Iceherbs

Aðferð
Þeytið hafrarjómann og setjið til hliðar.
Þeytið saman rjómaost, stevíudropa og vanillu í annarri skál þar til það er mjúkt og kekkjalaust.
Blandið hafrarjómanum smátt og smátt saman við og þeytið allan tímann þar til kremið er tilbúið. Kekkjalaust og passlega stinnt til að hægt sé að sprauta því.

Skiptið kreminu í 5 skálar svo þið getið hrært litina saman við, gulan, dökkbleikan, bleikan, grænan og bláan. Litarefnin í Litabombunum eru 100% náttúruleg og meira að segja holl. Hylkin innihalda náttúrulegan lit: túrmerikduft, rauðrófuduft, hveitigras og bláa spirúlínu. Til að gera dökkbleika setti ég bara meira af rauðrófuduftinu.

Hrærið vel saman við kremið með skeið.
Sprautið á kökuna og njótið!

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.
