Hráefni
4 msk heslihnetu- og möndlusmjör frá Monki
Ef það er ekki til má nota 3 msk af möndlusmjöri og 1 msk af heslihnetusmjöri. Einnig hægt að nota kasjúsmjör í stað heslihnetusmjörs.
30 g vegan smjör, kubbur frá Naturli
1-2 msk kakó
1 tsk hreint vanilluduft
1/2 tsk salt
2 msk yacon síróp
1 bolli heilar heslihnetur
1/2 bolli poppað kínúa

Aðferð
Bræðið vegan smjör ásamt heslihnetu- og möndlusmöri saman við lágan hita. Það þarf aðeins að hjálpa möndlusmjörinu, kremja með skeið til að það bráðni og samlagist hinu vel. Gætið þess að blandan sjóði ekki. Bætið kakói, salti og vanillu saman við og kælið blönduna.

Þegar blandan hefur kólnað er yacon sírópinu hrært vel saman við. Blandið síðan heslihnetunum og poppaða kínúanu saman við.
Setjið á plötu eða í lítil mót og frystið. Nammið er tilbúið nokkrum tímum síðar. Það geymist vel mjög lengi í frysti og er best beint úr frystinum. Ef þið ætlið að nota það í veislu er best að hafa það í mótum því það verður frekar lint þegar það þiðnar.

Það hefur verið erfitt að fá heslihnetusmjör á Íslandi undanfarið svo ég hef keypt það frá iHerb. Einnig hægt að búa það til ef þið eigið kraftmikla matvinnsluvél. Ef þið eruð ekki til í svona mikið stúss getið þið notað kasjúsmjör. Verður ekki alveg eins gott en ljómandi fínt samt.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.