Glernúðlur með grænmeti og spírum

Hráefni

500 g glernúðlur (ég nota úr mungbaunum)

3-4 gulrætur, eftir stærð

2 skarlottulaukar

2 vorlaukar

1 rauður chilli

2 msk engifer, saxaður

3 hvítlauksgeirar

100 g sykurbaunir eða snjóbaunir

1 haus spergilkál

handfylli af salatstrimlum

2 msk sesamolía 

3 msk tamarind sósa 

handfylli spírur 

ólífuolía til steikingar

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Ecospíra.

Aðferð

Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Mikilvægt að hreinsa þær vel upp úr köldu vatni á eftir, svo þær klessist ekki saman. Ef þær gera það má setja pínu olíu saman við. Svona eins og maður gerir við pasta.

Hreinsið og saxið skarlottulauka, hvítlauk og engifer. Sneiðið vorlauk og chilli fínt. Steinhreinsið chilli-ið fyrst ef þið viljið ekki hafa réttinn sterkann. Skerið salat og gulrætur í strimla og skiptið spergilkálinu í kvisti.

Steikið allt grænmetið á snöggheitri pönnu í smástund. Best að nota wok pönnu, en þar sem ég átti ekki nógu stóra slíka notaði ég venjulega og það var í fínu lagi. Setjið spírurnar saman við í lokin, þær eiga ekki að steikjast.

Blandið tamari sósu og sesamolíu saman við og síðan núðlunum. Blandið vel saman svo núðlurnar séu þaktar af sósunni og grænmetinu. 

Setjið á disk og skreytið með spírum.

Athugið að glernúðlur eru þessar fíngerðu, glæru og þær eru ekki alltaf úr mung baunum. Stundum úr hrísgrjónum og stundum sætum kartöflum. Ég hef reyndar ekki séð þessar síðastnefndu á Íslandi. Ég nota mungbauna núðlur, því þær eru næringaríkari en hrísgrjónanúðlurnar. Þær fást frá Fiska í Kópavogi, en hrísgrjónanúðlurnar fást víða.

Uppskriftin er unnin í samstarfi við Ecospíra.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.