Fræbollur með huski

Fræbollur með huski

Hráefni

300 g vatn

450 g ósæt möndlumjólk

100 g chia fræ

50 g hörfræ

100 g möndlumjöl

55 g cassava mjöl

50 g teff mjöl

50 g husk

1 tsk fínmalað husk (ekki nauðsynlegt)

55 g blönduð fræ. Sólblóma, graskers og sesam.

70 g glútenfrítt haframjöl, eða sesam mjöl fyrir þá sem ekki þola haframjölið.

10 g vínsteinslyftiduft

10 g matarsódi

10 g ólífuolía

salt og svartur pipar eftir smekk

sesamfræ til skreytingar

Aðferð

Hitið ofninn í 180 gráður.

Blandið möndlumjólk, vatni, chia fræjum og hörfræjum saman í hrærivélarskál og látið bíða í 5 mínútur. Hrærið með sleif í blöndunni annað slagið.

Fræbollur með huski

Vigtið allt beint í hrærivélaskálina og blandið vel saman með deig þeytaranum. Deigið er tilbúið þegar það er þykkt og næstum eins og venjulegt brauðdeig. Ég baka bollurnar stundum í múffuformum og nota ísskeið til að setja deigið í þau. Hef líka mótað bollur beint á plötu og það er ekki síðra. Stráið sesam fræjum yfir hverja bollu.

Fræbollur með huski

Fræbollur með huski

Bakað í ca. 45-50 mínútur við 180 gráður. Pínu mismunandi eftir ofnum.

Bollurnar fyrra video:

Bollurnar seinna video:

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.