Epla mylsnubaka

Hráefni

7 græn epli, eða ca. 750 g

1 tsk kanill

4 dropar karamellustevía (ef vill)

10 g vegan smjör, ég nota kubba smjörið frá Naturli

Mylsnan

1 bolli möndlumjöl

1/3 bolli soyamjöl (má líka nota kókosmjöl)

1/3 bolli hrísmjöl

1/3 bolli haframjöl

1/2 tsk hreint vanilluduft, frá Rapunzel

ögn af salti

50 g vegan smjör, kubbur frá Naturli

1/4 bolli möndlumjólk

1/2 bolli pecan hnetur, frá Rapunzel

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Rapunzel.

Aðferð

Hitið ofninn í 190 °C.

Afhýðið og skerið eplin í bita. Saxið pecan hneturnar nokkuð gróft.

Blandið mjöndlumjöli, soyamjöli, hrísmjöli, haframjöli, vanilludufti og salti saman í skál. Skerið vegan smjörið niður í litla bita og nuddið því svo saman við þurrefnin, eins og þegar þið eruð að búa til bökudeig. Þetta er líka hægt að gera í matvinnsluvél. Blandið síðan hnetunum saman við og að síðustu möndlumjólkinni. Þá á deigið að hanga gróflega saman.

Bræðið vegan smjör á pönnu og hrærið kanil (og stevíu) saman við. Þegar það hefur samlagast eru eplin sett út í og velt upp úr blöndunni í smá stund. Á ekki að sjóða eða verða alveg mjúkt, bara að mýkjast örlítið.

Setjið eplin í lítil bökuform eða eitt stórt og dreifið deiginu yfir.

Hversu mikla mylsnu þið notið er smekksatriði. Uppskriftin að mylsnunni er nokkuð stór svo ef það verður afgangur má móta úr honum smákökur og baka.

Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 25 mínútur. Athugið að kökurnar í litlu formunum þurfa aðeins styttri bökunartíma, eða u.þ.b. 20 mínútur.

Gott að bera fram með þeyttum hafra- eða kókosrjóma og/eða vanillusósu frá Oatly.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Rapunzel.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.