Bread Pitt

Á tveggja ára afmæli Mabrúka gleður mig að kynna fyrir ykkur hinn eina sanna Bread Pitt! Aðdragandinn hefur verið langur og þróunin brokkgeng, en loksins er kominn brauðhleifur sem stendur undir nafni. Léttur í sér og fagur með hvítlauksbragði. Þegar ég grínaðist með það fyrir nokkrum mánuðum á Facebook að mig langaði að þróa brauð með þessu heiti fékk eiginmaðurinn Lóu Hjálmtýsdóttur til að teikna af mér mynd, sem hann gaf mér svo í jólagjöf. Þá varð áskorunin um að gera Bread Pitt að veruleika enn brýnni.

Frumkvöðullinn Safa með kryddin sín frábæru.

Hráefni

250 g vatn

325 g ósæt haframjólk, eða möndlumjólk

30 g sesamfræ

100 g möndlumjöl

50 g hrísmjöl

25 g husk

50 g soyjamjöl

50 g sesam mjöl

10 g vínsteinslyftiduft

10 g matarsódi

5 g ólífuolía

1-2 msk hvítlauksduft, frá Mabrúka

1 tsk grænmetisblanda, frá Mabrúka

salt og svartur pipar eftir smekk

1 msk eplaedik

sesamfræ til skreytingar

Einnig hægt að setja ólífur saman við eða annars konar fræ.

Aðferð

Setjið vatn og plöntumjólk í hrærivélarskál og hrærið huskið saman við. Látið bíða í a.m.k. 5 mínútur meðan huskið dregur vökvann í sig.

Svona lítur það út þegar huskið hefur dregið vatnið í sig.

Blandið olíu, lyftiefnum, mjöli, fræjum og kryddi saman við og hrærið þar til allt hefur samlagast vel. Látið deigið bíða aðeins svo það drekki vökvann í sig. Ágætt að það bíði í a.m.k. 15 mínútur en má alveg vera miklu lengur. Blandið að lokum eplaedikinu út í og hrærið saman. Mjög varlega og stutt, bara rétt þannig að það blandist saman við. Ef þið notið ólífur fara þær saman við á þessu stigi líka.

Hafið hrísmjöl á borðinu þegar þið mótið brauðið. Svo það klessist ekki.

Gætið þess að setja ekki mikið í formin því deigið lyftir sér mikið. Athugið að það er auðveldara að baka litlu brauðin.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Mabrúka.

Skreytið með sesamfræjum.

Bakið þau litlu við 170 gráður í 40 mínútur, en stærri þurfa u.þ.b. klukkustund og korter. Ofnar eru misjafnir svo þau gætu þurft lengri tíma. Athugið að það má sleppa hvítlauksduftinu.

Það má alveg bæta 35 g af fræjum saman við deigið, og/eða glútenlausu haframjöli. Jafnvel ennþá betra.

Undanfarið hef ég bakað þetta oftar sem bollur, því það er svo þægilegt að eiga þær í frystinum. Ég nota ísskeið til að móta þær en auðvitað má líka nota hendurnar.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Mabrúka.

Sæluréttir Siggu er skrásett vōrumerki. Uppskriftirnar eru einungis ætlaðar til einkanota. Óheimilt er að nota þær í hvers kyns veitingaþjónustu án skriflegs leyfis frá eiganda vōrumerkisins. Dreifing, afritun, birting og ōnnur notkun uppskrifta og ljósmynda á síðunni er einnig óheimil án leyfis.